
Gunnar Ásgeir Ásgeirsson
Já, hver er ég eiginlega?
Hæ! Ég heiti Gunnar Ásgeirsson, en flestir þekkja mig sem Gunna og stundum líka Gunnsa.
Ég er fæddur árið 1987, uppalinn í Garðabæ, en árið 2019 ákvað ég að breyta til og flutti norður yfir heiðar til Akureyrar. Í dag nýt ég lífsins fyrir norðan þar sem fjöllin eru hærri og takturinn aðeins öðruvísi.
Tæknin í fyrirrúmi
Dagsdaglega starfa ég sem kerfisstjóri við Háskólann á Akureyri. Það er lifandi umhverfi þar sem tæknin er í stöðugri þróun. Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á öllu sem tengist tölvum og nýjungum, og þá sérstaklega gervigreind (AI).
Hér á þessu bloggi reyni ég að miðla þeim áhuga á mannamáli. Markmiðið mitt er að brjóta niður flókin tæknihugtök svo allir geti nýtt sér þau tól sem framtíðin býður upp á, án þess að þurfa að vera „tölvunördar“.
Cinelab og töfrar hvíta tjaldsins
Auk þess að sýsla með háskólanet, þá á ég og rek fyrirtækið Cinelab. Þar vinn ég á bak við tjöldin í íslenskum kvikmyndaiðnaði. Bíð kvikmyndaframleiðendum upp á DCP-þjónustu (Digital Cinema Package) fyrir kvikmyndahús, ásamt textun á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Cinelab hefur komið að mörgum af stærstu verkefnum landsins undanfarin ár og það er alltaf jafn gaman að sjá vinnuna enda á hvíta tjaldinu.
Litli Mallakúturinn og sköpunin
Þegar ég er ekki að stilla netþjóna eða texta bíómyndir, þá sit ég líklega við hljóðnemann. Ég held úti hlaðvarpinu Litli Mallakúturinn, þar sem spjallað er um allt milli himins og jarðar. Það hefur komið mér skemmtilega á óvart hversu vel fólk hefur tekið í þáttinn, en stærsti hluti hlustenda eru konur sem kunna að meta einlægt og gott spjall.
Ljósmyndunin fylgir mér enn, þó tíminn fyrir hana sé minni en áður. Ég gríp myndavélina þegar tími gefst til, en í dag eru það frekar skrifin og tæknipælingarnar sem fá að njóta sín hér á síðunni.
Gaman að þú kíktir við! Ef þú vilt heyra meira, spyrja um gervigreind eða bara segja hæ, ekki hika við að hafa samband.