Þáttur 24·52 mín
#24 Hrafnhildur Valgarðsdóttir - Hjáveita - "Ég þurfti að sýna mér meiri mildi"

Í þessum 24. þætti ræði ég við Hrafnhildi Valgarðsdóttur, deildarstjóra í Laugalandsskóla á Hellu, sem fór í magahjáveitu fyrir níu árum.
Hrafnhildur deilir því hvernig gamlar lífsreynslur og áföll mótuðu sjálfsmyndina og hvernig baráttan við kílóin tók óvænta stefnu eftir Long-COVID veikindi. Við ræðum opinskátt um „púkann í hausnum“, notkun Wegovy til að finna matarró og mikilvægi þess að mæta sjálfum sér af mildi frekar en hörku. Hrafnhildur segir einnig frá starfi sínu fyrir SFO og baráttunni fyrir bættum skilningi á offitu sem sjúkdómi.